Fiskistofa hefur sent frá sér orðsendingu um að tilgangslaust sé að sækja um strandveiðileyfi fyrr en lögin hafa verið birt í stjórnartíðindum og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur birt reglugerð þar um.
Gera má ráð fyrir að lögin verði birt á morgun þriðjudag og reglugerð í kjölfarið.
Fiskistofa tekur fram á heimasíðu sinni að:
„Vegna fjölda fyrirspurna vill Fiskistofa koma nokkrum atriðum á framfæri
sem er að finna í lögunum og varða umrædd leyfi.
Við útgáfu Fiskistofu á leyfi til fiskiskips til strandveiða falla úr
gildi önnur leyfi til þess að stunda veiðar til loka fiskveiðiársins 2008/2009,
sem gefin eru út með stoð í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og lögum
nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
Þá er rétt að taka fram að sama fiskiskipi verður aðeins veitt leyfi frá einu landsvæði á fiskveiðiárinu og útgerð skips verður að eiga heimilisfesti samkvæmt þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra á því landssvæði.“











Skrifa athugasemd