Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Strandveiðar - ný uppfærsla talna - 109 tonn bætast við á svæði A í ágúst - Landssamband smábátaeigenda

Strandveiðar - ný uppfærsla talna - 109 tonn bætast við á svæði A í ágúst

| Athugasemdir (0)


 Nýting útgefinna strandveiðileyfa er komin í rúm 80%, en í gær höfðu 384 bátar hafið veiðar af 478 sem fengið hafa leyfi.

Þorskaflinn í júní og júlí er að nálgast helming af því sem má veiða.  Búið að landa 1.382 tonnum af tæpum þrjúþúsund sem er í pottinum á tímabílinu.  Hver bátur hefur því veitt 3,6 tonn af meðaltali.


Veiðar hafa verið stöðvaðar á svæði A, en mat Fiskistofu var að þar mundi aflinn klárast 15. júlí sl.  Bræla einn daginn olli því hins vegar að bannið kom of snemma og bætast því rúm hundrað tonn á leyfilegan afla í ágúst á svæðinu.

 

Fram hafa komið óskir frá strandveiðimönnum um að byrja tveimur dögum seinna en leyfilegt er í ágúst.  Fyrsti róðradagur þá fellur inn í verslunarmannahelgina, sunnudagurinn 2. ágúst.  Þann dag er fiskvinnslufólk í fríi og því erfitt að losna við afla.  


Picture 6.png

 

 

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231