Fundurinn
fjallaði um fjölmörg önnur mál og samþykkti ályktanir þeim tengd.
Meðal þeirra var að skora á stjórnvöld að heimila 220 þús. tonna árlega veiði á þorski næstu 2 til 3 árin.
Til mótvægis verði dregið úr álagi á grunnslóðina með því að færa botndregin veiðarfæri fjær landi. Á grunninu verður meiri skaði þegar búið er að slóðadraga botninn, en á dýpri sjó. Því að áhrif strauma og storma gætir ólíkt meira á grunninu en utar í dýpri sjó. Á grunninu verður til mikið af fæðu fiskstofna og gróður sem skýlir ungviði.
Þá
lýsti fundurinn ánægju sinni með strandveiðar og hvatti til að hámarksafli á
dag verði miðaður við 800 þorskígildi.
Stjórn
Smábátafélags Reykjavíkur var endurkjörin, en í henni eru:
Garðar
Berg Guðjónsson formaður
Konný
Breiðfjörð Leifsdóttir ritari
Jón
Friðgeir Magnússon gjaldkeri
Þorvaldur
Gunnlaugsson varaformaður
Guðmundur
Jónsson meðstjórnandi











Skrifa athugasemd