Formaður
og framkvæmdastjóri LS mæta á fundinn.
Sæljón
Guðmundur
Elíasson formaður Sæljóns á Akranesi hefur boðað aðalfund félagsins
þriðjudaginn 6. október. Fundurinn verður haldinn í Jónsbúð og hefst kl 17:00.
Guðmundur
segir Akurnesinga áhyggjufulla vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á framboði
leigukvóta. Hann hafi þeir getað
stólað á undanfarin ár en nú sé allt stopp og stutt í að útgerðir á Skaganum
verði það líka.
Formaður
og framkvæmdastjóri LS mæta á fundinn.
Fontur
Haraldur
Sigurðsson formaður Fonts boðar félagsmenn til aðalfundar miðvikudaginn 7.
október. Fundarstaður er Hótel
Norðurljós á Raufarhöfn og hefst fundurinn kl. 14:00.
Auk
framkvæmdastjóra LS mun Ormur Arnarson frá Triton mæta á fundinn og ræða næstu skref í útflutningi á frosinni grásleppu.
Áður
hefur verið minnst á aðalfundi Kletts og Félags smábátaeigenda á Austurlandi.
Klettur fundar á Árskógssandi á morgun 3. október kl. 10:30 og Félag smábátaeigenda
á Austurlandi á Hótel Héraði nk. mánudag 5. október kl. 13:30.











Skrifa athugasemd