Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Sjávarútvegsráðherra bregðist strax við yfirvofandi stöðvun ýsuveiða - Landssamband smábátaeigenda

Sjávarútvegsráðherra bregðist strax við yfirvofandi stöðvun ýsuveiða

| Athugasemdir (0)


Á aðalfundi LS 15. og 16. október sl. var samþykkt að hvetja Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til að bregðast strax við því ófremdarástandi sem upp er komið í ýsuveiðum.

IMG_8339.jpg

Í greinargerð með samþykktinni segir að í nokkra mánuði hafi ekki verið hægt að fá leigðar veiðiheimildir í ýsu.  Afleiðingar þess eru að fjöldi báta verður að stöðva veiðar á næstu dögum án þess að vera komnir í kvótaþurrð í öðrum tegundum.  Við það minnkar framboð á línuveiddri ýsu, verðmæti lækkar, auk þess sem sjómenn og beitningafólk missir atvinnuna.

Skorað er á ráðherra að koma í veg fyrir þessi vandamál með því að setja í reglugerð að ýsa veidd á línu fram til næstu áramóta reiknist ekki til afla- eða krókaaflamarks hvers báts þar sem viðmiðunin verði 30% af ýsuafla viðkomandi á sl. fiskveiðiári.


Myndin er tekin á aðalfundi LS

Guðmundur Jónsson fulltrúi Smábátafélags Reykjavíkur og Garðar Berg Guðjónsson formaður félagsins og stjórnarmaður í LS

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is