Viðmiðunarárin til kvóta voru 1987, 1988 og 1989. Síðasta árið til viðmiðunar náði fjöldi smábáta áður óþekktum tölum, 1.828 bátar lönduðu afla það ár. Frá þeim tíma hefur smábátum fækkað jafnt og þétt ef undan er skilið fiskveiðiárið 2000/2001. Fjöldi þeirra var kominn niður í 715, 2007/2008 hafði því fækkað um 1.113 á 18 árum.
Fækkunin var aðallega bundin við aflamarksbáta, en fjöldi krókabáta var stöðugur allt til þess að sóknardagakerfið var aflagt 1. september 2004.
Tilkoma strandveiða hefur snúið þessari þróun við. Alls lönduðu 932 smábátar afla á sl. fiskveiðiári sem er 217 bátum fleira en frá fyrra ári. Fjölgun þeirra útgerða sem hafa tekjur af útgerð smábáta hefur því aukist um 30% á einu ári.
Sjá nánar.pdf











Skrifa athugasemd