Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra barst fyrir skömmu bréf undirritað af 183 einstaklingum í Langanesbyggð. Þar er komið „á framfæri þökkum fyrir þá miklu framför sem strandveiðikerfið er og það mikla líf sem það hefur hleypt í hafnir landsins. Hér í Langanesbyggð réri í sumar vel á annan tug báta og höfðu um 25 manns beina atvinnu af þessum róðrum auk afleiddra starfa. Kemur slíkt sér vel í ekki stærra byggðalagi. Er það mat okkar að hér sé um kæra búbót að ræða á erfiðum tímum.“











Skrifa athugasemd