Á síðasta fiskveiðiári var fluttur út óunninn afli á erlenda fiskmarkaði í gámum og með veiðiskipum að verðmæti 17,8 milljarða króna.
Hlutur ýsu var langmestur eða rúmur þriðjungur, alls 6,4 milljarðar. Verðmæti þorsks var 3,3 milljarðar og verðmæti karfa 2 milljarðar.
Mikil aukning varð í magni þorsks milli fiskveiðiára, um 3000 tonn sem jafngildir 51%. Minna var hins vegar flutt út af ýsu, samdráttur um 6%.
Alls var verðmæti þorsks og ýsu 9,7 milljarðar á móti 6,6 á fiskveiðiárinu 2007/2008.
Þegar reiknað er til kílósverðs milli fiskveiðiáranna, er hækkun ýsunnar langt umfram þorskinn eða 46% á móti 12% á hvert þorskkíló.
Unnið upp úr frétt frá Fiskistofu