Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða hefur verið afgreitt frá sjávarútvegsnefnd til 2. umræðu á Alþingi. Í frumvarpinu er m.a. lagt til að línuívilnun verði aukin úr 16% í 20% og trektarbátar fái einnig ívilnun sem verði 15%. Það veldur vonbrigðum að sjávarútvegsnefnd hafi ekki orðið við beiðni LS um að vélabátar fái ívilnun.
Þá tekur frumvarpið til geymsluréttar, verður 15% í stað 33%, að veiðiskylda verði aukin, úthlutunar á viðbótarkvóta á skötusel gegn gjaldi o.fl. þáttum.
Ekki er á þessari stundu ljóst hvenær 2. umræða um frumvarpið verður á dagskrá.
Sjá álit meirihluta sjávarútvegsnefndar








Skrifa athugasemd