Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Stjórn Hrollaugs vill breytingar á „skötuselsfrumvarpi“ og aukinn þorsk- og síldarkvóta - Landssamband smábátaeigenda

Stjórn Hrollaugs vill breytingar á „skötuselsfrumvarpi“ og aukinn þorsk- og síldarkvóta

| Athugasemdir (0)


Stjórn Smábátafélagsins Hrollaugs kom saman til fundar í gær 8. desember.  Á fundinum var m.a. rætt um þá erfiðu stöðu sem nú blasir við þjóðinni og mikilvægi þess að auka verðmæti í sjávarútvegi og fá þannig verðmætan gjaldeyri inn í landið.

Eftirfarandi var samþykkt á fundinum:

1.            Smábátafélagið Hrollaugur mótmælir „skötuselsfrumvarpinu“ eins og það er sett fram.   Stjórnin telur frumvarpið illa ígrundað og vanhugsað. Smábátatafélagið Hrollaugur lýsir stuðningi við ætlun ráðherra að auka skötuselskvótann, en skorar á hann að ætla 500 tonn til að mæta meðafla við grásleppuveiðar og úthluta afganginum með hefðbundnum hætti til þeirra sem hafa hlutdeild í skötusel.  

 

2.            Smábátafélagið Hrollaugur skorar á sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra að gefa strax út aukinn þorskvóta, 40 þúsund tonn.  Stjórnin bendir á að nægur þorskur er á miðunum allt í kringum landið.

 

 3.            Smábátafélagið Hrollaugur skorar á sjávarútvegsráðherra að gefa strax út meiri síldarkvóta í ljósi þess að mest öll síld á vertíðinni hefur farið til manneldis.  Vandfundin eru mótrök við auknum kvóta í ljósi yfirlýsinga Hafró um að stór hluti síldarinnar drepist.  Með veiðum væri verið að bjarga verðmætum og fá þar með verðmætan gjaldeyri inn í landið.  

 

 

Í stjórn Hrollaugs eru:

 

Arnar Þór Ragnarsson formaður

Unnsteinn Þráinsson gjaldkeri

Friðþór Harðarson  ritari                                                                                       

 

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is