Eins og fram kom hér á heimasíðunni 18. desember sl. hefur Alþingi til meðferðar frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Þar er meðal annars kveðið á um aukna ívilnun við línuveiðar.
Þegar aflatölur um nýtingu línuívilnunar á fyrsta tímabili yfirstandandi fiskveiðiárs eru skoðaðar sést að afar brýnt er að hraða eins og kostur er samþykkt frumvarpsins, þannig að ívilnunin nýtist að fullu.
Á tímbilinu sem lauk 30. nóvember sl. var ætlað 1.080 tonn af þorski til línuívilnunar en aðeins 461 tonn nýttust til hennar eða 43%. Nýting var ögn skárri í ýsunni, en þar nýttust 596 tonn til ívilnunar af 903 tonnum.








Skrifa athugasemd