Áramótin eru kjörin tími til að skoða aflastöðuna. Í umfjöllun sem hér fylgir eru aflaheimildir miðaðar við daginn í dag og afli tekur mið af bráðabirgðatölum Fiskistofu í gær 12. janúar. Hér á eftir verður gerð grein fyrir stöðunni í þorskinum og á morgun verður fjallað um ýsuna.
Þorskur
Búið var að veiða 64.128 tonn sem er 42% af leyfilegum heildarafla. Þorskaflinn nú er tæpum 11 þús. tonnum meiri en á sama tíma í fyrra, en þá hafði 32% aflaheimildanna verið nýttar. Ástæður þessa gætu verið nokkrar, trúlega ræður gott verð þar mestu. Auk þess nefna viðmælendur að krókaaflamarksbátar búa við of rýrar veiðiheimildir í ýsu og beita sér því meir í þorskinn, en hjá aflamarksskipum hefur ýsan gefið sig verr það sem af er fiskveiðiári og því meiri áhersla lögð á þorskinn.
Það vekur athygli að nánast báðir útgerðarflokkarnir hafa nýtt jafn mikið af þorskinum. Krókaaflamarksbátar 41%, en aflamarksskip 42%, sambærilegar prósentur á sama tíma á síðasta fiskveiðiári var 30% hjá krókabátum og 33% í aflamarkinu.








Skrifa athugasemd