Í frétt frá Hafrannsóknastofnun kemur fram að loðnumælingar
hafi leitt í ljós að stærð hrygningarstofns loðnu sé nú áætlaður um 530 þúsund
tonn.
Samkvæmt aflareglu er gert ráð
fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygningar.Í ljósi þessara upplýsingar hefur Hafrannsóknastofnunin
lagt til við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að hámarksafli á vertíðinni
verði 130 þús. tonn.
Skrifa athugasemd