Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Fiskistofa vísar á bug fullyrðingum LÍÚ um stjórnlausar strandveiðar - Landssamband smábátaeigenda

Fiskistofa vísar á bug fullyrðingum LÍÚ um stjórnlausar strandveiðar

| Athugasemdir (0)


Fiskistofa hefur brugðist við frétt LÍÚ sem birtist á heimasíðu sambandsins þar sem strandveiðum var enn eina ferðina fundið allt til foráttu.  Veiðarnar væru stjórnlausar og eftirlitsþátturinn hafi verið jafnmikið verkefni „og eftirlit með öllum veiðum alls íslenska fiskiskipaflotans allan ársins hring“

Fram kemur í fréttatilkynningu Fiskistofu að eftirlit með strandveiðum hafi að mestu verið rafrænt og miðað við fjölda strandveiðibátanna og umfang veiðanna að þá hafi eftirlitið gengið mjög vel.

 

Um þennan þátt segir eftirfarandi í fréttatilkynningunni:

„Fiskistofa lagði áherslu á að koma á rafrænu eftirliti með strandveiðum þar sem því var við komið og af þeim 6 sértæku skilyrðum sem veiðarnar voru bundnar var rafrænt eftirlit haft með 4, þ.e. veiðum á frídögum, tímalengd veiðiferðar, sjálfvirkum fjareftirlitsbúnaði og leyfilegu aflahámarki á dag. Miðað við fjölda strandveiðibátanna og umfang veiðanna gekk eftirlitið með þeim mjög vel, að mati Fiskistofu og það er fráleitt að halda því fram að það hafi verið jafnmikið verkefni „og eftirlit með öllum veiðum alls íslenska fiskiskipaflotans allan ársins hring“ og að strandveiðarnar hafi búið til „stjórnsýslulegan óskapnað“eins og gert er í umræddri „frétt“ á heimasíðu LÍÚ.

 

Sjá fréttatilkynninguna í heild

 

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is