Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Nýting sjávarafla - nýting afla af frystitogurum mun lakari en í landvinnslu - Landssamband smábátaeigenda

Nýting sjávarafla - nýting afla af frystitogurum mun lakari en í landvinnslu

| Athugasemdir (0)


Út er  komin skýrsla Matís ohf. um greiningu á nýtingu sjávarafla hér við land.  Skýrslan er unnin fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og hefur verið í vinnslu í tæpt ár.

Skýrslan er öll hin fróðlegasta og sýnir m.a. að hægt er að gera betur í að hámarka verðmæti þess sem veitt er.  Í samandregnu úr skýrslunni segir m.a.: 

„Niðurstöður þessarar skýrslu sýna að verulegur munur var á nýtingatölum í landvinnslu og sjóvinnslu þ.s. flakanýting, hausanýting og nýting á aukaafurðum var umtalsvert lakari hjá frystitogaraflotanum.“

 

Í fréttatilkynningu í tilefni af útkomu skýrslunnar sem birt er á heimasíðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins segir Jón Bjarnason eftirfarandi:  

„Það er mín skoðun að koma eigi með allan afla að landi.  Þetta snýr að siðlegri umgengni okkar við sjávarauðlindina og séu á því gerðar undantekingar, þá séu þær vel ógrundaðar.  Möguleikar á nýtingu ýmissa aukaafurða hafa batnað mjög á undanförnum áratug.  Nú er búin til fullgild vara úr aukaafurðum sem engum manni datt í hug að hirða hér áður fyrr.  Því er ekkert sem segir að við getum ekki komið með allan afla að landi og gert það með ágætum hagnaði í nánustu framtíð.  Skýrsla Matís er gott innlegg inn í umræðu sem nausynlegt er að fari fram á næstunni um þetta málefni.“

 

Sjá nánar

Skýrslan í heild

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is