Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Reykjanes styður ályktun stjórnar LS um skötuselsfrumvarpið - Landssamband smábátaeigenda

Reykjanes styður ályktun stjórnar LS um skötuselsfrumvarpið

| Athugasemdir (0)


Smábátafélagið Reykjanes hélt almennan félagsfund þann 6. mars 2010.

Fjölmörg mál voru rædd, en mest þó skötuselsfrumvarp sjávarútvegsráðherra, línuívilnun og strandveiðar.

Samþykkt var samhljóða á fundinum að lýsa yfir stuðningi  við núverandi afstöðu stjórnar LS varðandi skötuselsfrumvarp sjávarútvegsráðherra.

 

Mikil og þung umræða var um yfirvofandi stöðvun fjölmargra útgerða vegna of litilla veiðiheimilda.  Samþykkt var að skora á sjávarútvegsráðherra að auka nú þegar við aflaheimildir í flestum tegundum:  í þorski um 40.000 tonn, ýsu 15.000 tonn, ufsa 10.000 tonn, karfa 5.000 tonn og skötusel um 1.000 tonn.

 

Einnig var samþykkt að fulltrúar frá Smábátafélaginu Reykjanesi ræði við sjávarútvegsráðherra, um að heimiluð verði jöfn skipti í þorskígildum talið, á ufsa úr krókaaflamarki í aðrar tegundir úr aflamarki.

 

Formaður Reykjaness er Halldór Ármannsson

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is