Á ársfundi Gildis lífeyrissjóðs sem lauk fyrr í kvöld lagði Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS fram fjölmargar spurningar. Ein þeirra fjallaði um víkjandi lán sjóðsins til Glitnis, engar tryggingar né veð á bakvið.
„Hver er skýring þess
að Gildi lífeyrissjóður lánar Glitni hf, banka í einkarekstri, víkjandi lán að
upphæð 3,69 milljarðar?“
„Hver eða hverjir tóku ákvörðun um þetta lán, hver eða hverjir bera ábyrgðina og hvað lá til grundvallar ákvörðuninni? Hvað gekk mönnum til?“ spurði Örn.
Í svari formanns stjórnar og framkvæmdastjóra kom fram að um sameiginlega ákvörðun hafi verið að ræða hjá stjórn og stjórnendum sjóðsins.
Í ársskýrslu sjóðsins kemur fram að víkjandi lán hafi verið afskrifuð að fullu og ekki gert ráð fyrir að neitt fáist upp í þær kröfur.
Til samanburðar skal þess getið að heildariðgjöld allra sjóðfélaga Gildis á síðasta ári var 3,53 milljarðar eða 160 milljónum lægri en það sem tapaðist.
Nánar verður fjallað um ársfundinn á næstu dögum.











Skrifa athugasemd