Í dag fagna félagsmenn í Bátafélaginu Ægi hálfrar aldar afmæli félagsins.
Það var 29. apríl 1960 sem smábátaeigendur í Stykkishólmi komu saman til fundar á kaffistofu Sigurðar Ágústssonar í þeim tilgangi að stofna með sér formlegan félagsskap. Bátafélagið Ægir varð að veruleika á fundinum. Formaður var kosinn Höskuldur Pálsson, Lúðvíg Halldórsson ritari og Kristján Jakobsson gjaldkeri. Varamenn voru Ingvi Kristjánsson og Ingvar Breiðfjörð.
Allar götur síðan hefur félagið verið vel virkt og fundað reglulega.
Formenn Bátafélagsins Ægis hafa verið eftirtaldir:
Höskuldur Pálsson 1960 - 1976
Lúðvíg Halldórsson 1976 - 1986
Björgvin Guðmundsson 1986 - 1990
Kristinn Gestsson 1990 - 1991
Símon Sturluson hefur gengt formennsku frá 1991.
Nú eru félagsmenn í Bátafélaginu Ægi 47 og munu þeir fagna 50 ára afmælinu á Veitingastaðnum Fimm Fiskum á morgun.
Landssamband smábátaeigenda óskar Bátafélaginu Ægi til hamingju með afmælið og þakkar af heilum hug fyrir þátt félagsins í réttindabaráttu smábátaeigenda.
Sjá nánar um Bátafélagið Ægi











Skrifa athugasemd