Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Grásleppan í sókn - styrkur frá AVS - Landssamband smábátaeigenda

Grásleppan í sókn - styrkur frá AVS

| Athugasemdir (0)


Landssamband smábátaeigenda og Triton ehf hafa unnið að því á undanförnum árum að leita leiða til að gera verðmæti úr grásleppunni eftir að hrognin hafa verið tekin úr henni.

Á ýmsu hefur gengið í þessu starfi.  Framan af fönguðu þátttakendur fátt annað en vonbrigði, þar með talinn áhugi AVS á að styrkja framtakið.  Frá 2008 hefur hins vegar orðið viðsnúningur.  Tekist hefur að skapa markað fyrir vöruna í Kína sem lofar góðu.   Á sl. ári tók þessi markaður við 75 tonnum af grásleppu án hrogna.  Viðtökur við vörunni hafa verið ágætar sem skýrist best á að Kínverjar vilja nú kaupa tvöfalt meira en í fyrra.

Í fyrra styrkti AVS verkefnið „Grásleppan í land“ um 4 milljónir og nú hefur verkefnið „Grásleppan í sókn“ verið styrkt um 3 milljónir.  Þó sótt hafi verið um hærri upphæðir kemur styrkveitingin sér vel og eykur möguleika á að markmið verkefnisins náist sem er að:

·         þróa vinnsluaðferðir á grásleppunni þannig að sem minnst rýrnun verð á vörunni.

·         að skila grásleppuveiðimönnum verðmætum með því að hirða grásleppuna.

·         að auka magn grásleppu sem komið er með að landi um 200% 

Sjá má lista yfir AVS styrkt verkefni 2010 með því að blikka hér.

 

 

 

            

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231