Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Utanríkisráðherra hlynntur aukningu þorskkvóta? - Landssamband smábátaeigenda

Utanríkisráðherra hlynntur aukningu þorskkvóta?

| Athugasemdir (0)


Í umræðu á Alþingi um óundirbúnar fyrirspurnir ræddi Ásbjörn Óttarsson um aukningu þorskkvótans.  Hann vitnaði til ummæla utanríkisráðherra sem hann viðhafði í 2. umræðu um strandveiðar.

Í ræðu sinni átaldi Ásbjörn harðlega að það stæði yfir endalaus skoðun.  Nú væri kominn tími aðgerða.  Auka þyrfti þorskkvótann tafarlaust.  Hann vitnaði máli sínu til stuðnings í skýrslu Hafrannsóknastofnunar að þó þorskkvótinn yrði aukinn um 40 þús. tonn mundi þorskstofninn stækka úr 702 þús. tonnum í 718 þús. tonn. 

 

„Ef hægt er að sýna fram á að það sé hægt að gera þetta án þess að stofninn minnki, þá er ég til í þann dans.“, kom meðal annars fram hjá utanríkisráðherra Össuri Skarphéðinssyni. 

 

Hlusta á umræðuna hér

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231