Month: June 2010
-
3. tímabil strandveiða hefst á morgun, 1. júlí.
Fjöldi útgefinna strandveiðileyfa er nú 702 (alls 594 í fyrra). Alls hafa 644 (545) bátar nýtt leyfin og aflinn er kominn í 0-4-3 tonn sem er jafn mikið og strandveiðibátar veiddu í fyrra. Á morgun hefst 3. tímabil strandveiðanna. B og C svæðin taka með sér afla inn í júlí frá 2. tímabili, en…
-
Dómur Hæstaréttar – fyrirhugaður fundur LS og Bændasamtakanna
Forsvarsmenn Landssambands smábátaeigenda og Bændasamtakanna hafa ákveðið að eiga sameiginlegan fund um þá stöðu sem upp er komin vegna óljósra viðbragða lánastofnana við dómi Hæstaréttar. Félagsmenn eiga samleið á þessu sviði þar sem margir þeirra eru með lán sem dómur Hæstaréttar nær yfir. Einnig hafa komið fram áhyggjur félagsmanna á misvísandi upplýsingum um þol…
-
Óskilvirkur kvótamarkaður með ýsu
Athygli vekur að á sama tíma og ýsan er fullnýtt hjá útgerðum krókaflamarksbáta, eins og kom fram í frétt hér fyrr í dag, á eftir að veiða um 30% af henni í aflamarkskerfinu. Því vekur það undrun að viðskipti með ýsukvóta úr aflamarkskerfinu til krókabáta skuli ekki vera virkari en hann er, ekki síst þegar…
-
Krókaaflamarksbátar hafa fullnýtt heimildir í flestum tegundum
Í fréttatilkynningu sem Fiskistofa hefur sent frá sér kemur m.a. fram að krókaaflamarksbátar hafa nýtt hærra hlutfall af kvótabundnum tegundum en undanfarin fiskveiðiár. Þar er um að ræða ýsu, löngu og keilu. Sjá frétt Fiskistofu – Nýting aflaheimilda
-
Rafrænar afladagbækur – velheppnaður kynningarfundur í Sandgerði
Í samvinnu við Reykjanes félag smábátaeigenda á Reykjanesi hélt Fiskistofa kynningarfund með félagsmönnum um notkun á rafrænni afladagbók 11. júní sl. Á fundinn mættu Sigurjón Aðalsteinsson og Ólafur Sindri Helgason frá Upplýsingasviði Fiskistofu. Erindi Sigurjóns var afar upplýsandi og svaraði fjölmörgum spurningum um notkun afladagbókarinnar. Að sögn Halldórs Ármannssonar formanns Reykjaness var algengur sá skilningur…
-
Smábátaeigendur bíða viðbragða lánastofnana
Fjölmargir smábátaeigendur hafa í dag haft samband við skrifstofu LS og spurst fyrir um rétt sinn á grundvelli dóms Hæstaréttar. Svörin sem þeir hafa fengið eru skýr, sé lánið í krónum er óheimilt að verðtryggja það með gengi erlendra gjaldmiðla. Lögmaður sem LS hafði samband við ráðleggur félaginu að bíða átekta með að óska eftir…
-
Hæstiréttur – lánastofnanir brutu lög, lánasamningar í íslenskum krónum, óheimilt að binda við gengi erlendra gjaldmiðla
Dómar Hæstaréttar í dag marka vonandi tímamót í stöðu fjölmargra smábátaeigenda. Hvorki stjórnvöld né lánastofnanir hafa viljað koma til móts við óskir LS um almenna leiðréttingu á lánum félagsmanna eftir að þau hækkuðu mörg hver um rúm hundrað prósent við efnahagshrunið. Dómarnir gætu því markað tímamót í gríðarlegum erfiðleikum sem fjölmargir félagsmenn eru í…
-
Losun kjölfestuvatns ekki lengur heimil við strendur Íslands
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur með reglugerð bannað losun kjölfestuvatns innan mengunarlögsögu Íslands. Með reglugerðinni er komið í veg fyrir að framandi lífverur, svo sem þörungar, krabbadýr og sýklar, berist með kjölfestuvatni til hafsvæða og stranda landsins. Rúm tvö ár eru liðin frá því siglingaráð samþykkti ályktun um losun kjölfestuvatns skipa. Þar var umhverfisráðherra hvattur til…
-
Sprenging í útflutningsverðmæti grásleppuhrogna og kavíars
Í fréttatilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu er m.a. greint frá því að grásleppuveiðar geti á þessu ári skilað 5,4 milljörðum í útflutningsverðmæti. Sjá fréttina í heild með því að blikka hér.
-
Gullkistan sem var
Í sjómannadagsblaði Fiskifrétta birtist eftirfarandi grein eftir Arthur Bogason, formann Landssambands smábátaeigenda, undir fyrirsögninni „Den Tid, Den Tid“: Þegar við rennum eftir malbikinu út Álftanesið vita fæst okkar að á síðari hluta 19. aldar voru um 70 bátar, frá áttæringum og niður úr, gerðir þaðan út. Yfir vertíðina fjölgaði um 200 manns í Bessastaðahreppnum, aðkomumenn…
