Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Dómur Hæstaréttar - fyrirhugaður fundur LS og Bændasamtakanna - Landssamband smábátaeigenda

Dómur Hæstaréttar - fyrirhugaður fundur LS og Bændasamtakanna

| Athugasemdir (0)


Forsvarsmenn Landssambands smábátaeigenda og Bændasamtakanna hafa ákveðið að eiga sameiginlegan fund um þá stöðu sem upp er komin vegna óljósra viðbragða lánastofnana við dómi Hæstaréttar.  Félagsmenn eiga samleið á þessu sviði þar sem margir þeirra eru með lán sem dómur Hæstaréttar nær yfir.  


Einnig hafa komið fram áhyggjur félagsmanna á misvísandi upplýsingum um þol lánastofnana um að standa við skuldbindingar sem dómurinn leggur þeim á hendur.   Þar er átt við fullyrðingar viðskiptaráðherra um að dómurinn geti kostað almenning 100 milljarða og hins vegar það sem fram kemur í tilkynningu frá viðskiptabönkunum um að þeir þoli áhrif gengisdómsins og ríkið þurfi ekki að auka framlög til þeirra.   

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231