Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Línuívilnun í 20% og trektarbátar með 15% - Landssamband smábátaeigenda

Línuívilnun í 20% og trektarbátar með 15%

| Athugasemdir (0)


Breytingar á lögum um stjórn fiskveiða voru samþykktar á Alþingi 22. mars sl.   Meðal þeirra voru að frá og með deginum í dag, 1. júní, hækkar línuívilnun úr 16% í 20%.  Auk þeirra sem fengið hafa línuívilnun bætast nú við dagróðrabátar þar sem línan er stokkuð upp í landi (trektarbátar), þeir fá 15% ívilnun.

 

Miklum þrýstingi var beitt í því skyni að Alþingi gengi skrefið til fulls þannig að dagróðrabátar með beitningavél fengju einnig ívilnun.  Því miður náðist það ekki að þessu sinni, en jákvæður hljómgrunnur var fyrir málinu og mun það nýtast í næstu atrennu.

 

     

 

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is