Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Losun kjölfestuvatns ekki lengur heimil við strendur Íslands - Landssamband smábátaeigenda

Losun kjölfestuvatns ekki lengur heimil við strendur Íslands

| Athugasemdir (0)


Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur með reglugerð bannað losun kjölfestuvatns innan mengunarlögsögu Íslands.  Með reglugerðinni er komið í veg fyrir að framandi lífverur, svo sem þörungar, krabbadýr og sýklar, berist með kjölfestuvatni til hafsvæða og stranda landsins.


Rúm tvö ár eru liðin frá því siglingaráð samþykkti ályktun um losun kjölfestuvatns skipa.  Þar var umhverfisráðherra hvattur til að koma að málinu og setja skýrar reglur um losun kjölfestuvatns.


LS fagnar ákvörðun umhverfisráðherra sem mun auka verndun á lífríki sjávar umhverfis Ísland.

 

Frétt umhverfisráðuneytisins

 


Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231