Í nýliðnum júní voru seld alls 2.408 tonn af þorski á fiskmörkuðunum. Langmest var þorskur frá handfærabátum 1.371 tonn, eða 57% af heildarmagninu. Meðalverð aflans var mjög gott eða 327 kr/kg sem skilaði um 450 milljónum í aflaverðmæti.
Hér er um mikla aukningu frá sama tíma í fyrra
þegar aflaverðmætið var 200 milljónir og meðalverð 238 kr/kg. Milli ára jókst magnið af þorski um rúm
500 tonn sem selt var af handfærabátum á fiskmörkuðunum. Hlutdeild þeirra þá í þorski seldum á
fiskmörkuðunum var tæpur þriðjungur.
Unnið upp úr
tölum á rsf.is











Skrifa athugasemd