Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Þorskur 32% af heildaraflaverðmætinu 2009 - Landssamband smábátaeigenda

Þorskur 32% af heildaraflaverðmætinu 2009

| Athugasemdir (0)


Sem fyrr er þorskur verðmætasta fisktegundin, en aflaverðmæti hans nam 36,9 milljörðum á árinu 2009.  Heildaraflaverðmæti 2009 var 115 milljarðar þannig að 32% aflaverðmætisins lág í þorskinum.

Þrátt fyrir að aflaverðmæti hafi hækkað um 16 milljarða milli ára lækkaði það um 2,8% á föstu verðlagi miðað við verðvísitölu sjávarafurða.

 

 

Raunverð ýsu hækkar en þorskur lækkar um 20%

 Á árinu 2009 voru veidd 189 þús. tonn af þorski sem eru 38 þús. tonnum meira en 2008.  Það eru vonbrigði að aflaverðmætið hafi ekki aukist nema um 4,7 milljarða sem þýðir lækkun um 8,3% eða 20% raunverðslækkun.

Þrátt fyrir 20 þúsund tonna samdrátt í ýsuafla á árinu 2009 miðað við 2008, jókst aflaverðmætið um 1,8%.   Meðalverð á ýsu hækkaði um 27,3% milli ára sem er raunverðshækkun um 11,1%.   Alls nam aflaverðmæti þeirra 82 þús. tonna af ýsu á árinu 2009 15,4 milljörðum.

 

 

Unnið upp úr tölum frá Hagstofu Íslands

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231