Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Aflaverðmæti þorsks nálægt helmingi alls botnfisks - Landssamband smábátaeigenda

Aflaverðmæti þorsks nálægt helmingi alls botnfisks

| Athugasemdir (0)


Aflaverðmæti fyrstu níu mánuði síðasta árs var 101 milljarður sem er aukning um 15 milljarða frá sama tímabili 2009.  Verðmæti botnfisksaflans var 70,8 milljarðar, en 47% af því bar þorskurinn eða alls 33,3 milljarða.  Aukning á aflaverðmæti þorsks milli ára var 26,9% og jókst hlutdeild hans í heildaraflaverðmæti úr 30,5% í 32,8%.

Hlutur uppsjávaraflans í heildaraflaverðmætinu var 20,6% eða 20,9 milljarðar.

 

 

Unnið upp úr tölum frá Hagstofu Íslands

 

 

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231