Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð um strandveiðar sem hefjast 1. maí næst komandi.
Reglugerðin er óbreytt frá síðasta ári að því undanskildu að á svæði C, Þingeyjarsveit - Djúpavogshreppur, eru mánaðarlegar viðmiðanir lækkaðar á fyrri hluta tímabilsins maí - september og hækkaðar til jafns á síðari hluta þess.
Þá er í reglugerðinni ítrekað ákvæði laga um
að eitt af skilyrðum fyrir strandveiðileyfi sé að ekki hafi verið fluttar
veiðiheimildir í þorskígildum talið frá viðkomandi umfram þess sem hann hafi
tekið til sín.











Skrifa athugasemd