Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur samþykkt tillögu Hafrannsóknastofnunar að banna notkun haukalóða við lúðuveiðar. Bannið tekur gildi frá og með 1. janúar 2012, sbr. reglugerð nr 477/2011.
LS
mótmælir ákvörðun ráðuneytisins harðlega og lýsir yfir miklum vonbrigðum með að
ekki hafi verið fallist á tillögur félagsins um rannsóknir á áhrifum sleppingar
á lúðu styttri en 80 cm við styrkingu lúðustofnsins.
Ennfremur
kemur fram í umsögn LS um málefnið að lúðuveiðimenn sem stundað hafa veiðar með
haukalóðum sl. áratugi hafa upplifað stöðugleika í veiðunum bæði hvað magn og samsetningu
afla varðar, en 90% af afla þeirra er lúða eldri en 10 ára.
Í
umsögninni lýsti LS sig reiðubúið til samstarfs við SLR og Hafró um
upplýsingagjöf frá sérfræðingahópi félagsins um lúðuveiðar og gríðarlegan
upplýsingabanka um lúðu í N-Atlantshafi sem unnin hefur verið hjá Hafró í Nova
Scotia. Með útgáfu reglugerðarinnar var
þessu samstarfi hafnað og kosið að beita henni til að kippa grundvellinum undan
rekstri lúðuveiðibáta á grundvelli ónægra upplýsinga og þekkingar á að
aðferðin skipti neinu máli varðandi framtíð lúðustofnsins og tillögugerð til styrkingar stofninum.
Í
lok umsagnarinnar krafðist „LS þess að gögn Hafrannsóknastofnunarinnar um
stofnmælingu á lúðu verði yfirfarinn af hlutlausum aðilum. Félagið efast um aðferðafræði stofnunarinnar að hægt sé að mæla stofnstærð útfrá veiðum á veiðarfæri sem ekki er notað við
viðkomandi veiðar.“!
Sjá Umsögn LS - lúða.pdf í heild.











s Fall '09 RTW collection takes its inspiration from the natural beauty of the Egyptian landscape, and his shoe collection features five shoe styleswith names like Slither, Saunter, informal wedding dresses informal wedding dresses SheDevil fake rolex , Sand Strap and Strutalso created with Egyptian inspiration. Personally, replica armani replica armani I was never a fan of Siriano's designs (at least the ones that