Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Vilja rýmka framsalsreglur og halda greiðslumiðlun - Landssamband smábátaeigenda

Vilja rýmka framsalsreglur og halda greiðslumiðlun

| Athugasemdir (0)

Aðalfundur Stranda var haldinn á Hólmavík 18. september sl.  Á fundinum ríkti mikil eining sem skilaði vel ígrunduðum tillögum til aðalfundar LS sem haldinn verður 13. og 14. október nk.

Meðal þeirra er að:
IMG_3643.jpg

Fyrirkomulag grásleppuveiða á vertíðinni 2012 verði óbreytt

Ýsukvóti verði strax aukinn í 
60 þús. tonn.

Reglugerð í Húnaflóa sem 
bannar línuveiðar verði afnumin
Í greinargerð með tillögunni segir að lokunarhólfið sé mikilvæg veiðislóð fyrir smábáta við Húnaflóa.  Hæpnar forsendur væru fyrir reglugerðinni sem byggðist mest á illdeilum milli veiðieftirlitsmanna og skipstjóra Sighvats GK.

IMG_3644_2_3.jpeg
Þess er krafist að skötuselur verði utan kvóta sem meðafli á grásleppuveiðum.

Strandir skora á sjávarútvegsráðherra að auka framsals- og geymslurétt veiðiheimilda

Að fyrirkomulag greiðslumiðlunar verði óbreytt, en hægt verði að segja sig frá trygginga- og/eða lífeyrishluta.                     



Haraldur Ingólfsson formaður Stranda



Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231