Félagsmenn í Sæljóni á Akranesi komu saman til aðalfundar 26. september sl. Góð mæting var á fundinn og umræður málefnalegar. Grásleppuveiðar, lánamál, dragnótaveiðar í Faxaflóa, strandveiðar, greiðslumiðlu, voru meðal þess sem rætt var um.
Sæljón samþykkti eftirfarandi sem áherslupunkta félagsins inn á aðalfund LS:
- Að slægingarstuðull verði óbreyttur
- Greiðslumiðlun fyrir smábáta verði með óbreyttu fyrirkomulagi. Í greinargerð segir að kerfið hafi reynst vel m.a. tryggt að allir bátar eru tryggðir á hagkvæman hátt. Tillögur um breytingar á núverandi fyrirkomulagi virðist byggjast á annarlegum hvötum.
- Sæljón leggur áherslu á að ekkert verði gefið eftir í sambandi við lánamál smábátaeigenda.

- Aflaregla í þorski verði gerð sveigjanlegir. Viðmiðunartölur þar eru of lágar, ætti að gefa veiði nú upp á 200.000 tonn. Einnig er niðurskurður í ýsu, steinbít og ufsa of mikill og illa rökstuddur. Tillögur Hafró eru ekki í takt við þær upplýsingar sem þeir gefa frá sér og aflareglan er fyrirbæri sem ekki hefur verið rökstutt nógu vel.
- Mótmælt er banni við lúðuveiðum. Þar er byrjað á öfugum enda. Hvers vegan er Hafró að loka veiðisvæðum vegna smáfisks?
- Að veiðidagar á grásleppu verði 50.

- Breyta þar reglum um byggðakvóta þannig að allir sitji við sama borð og (sjó). Bátar frá Akranesi eigi sömu möguleika og aðrir.
- Að handfæraívilnun verði tekin upp.
- Að staðinn sé vörður um strandveiðikerfið og full sátt verði um það.
- Að dragnótaveiðar í Faxaflóa verði aflagðar. Veiðarnar hafa alltaf verið Akurnesingum þyrnir í auga. Reynsla okkar er slæm. Hægt er að sjá áhrif t.d. með athugun á aflaskrá fiskifélagsins „Ægi“. Veiði hefur nú dregist stórlega saman - sandkoli, rauðspretta og lúða nær horfin úr flóanum. Hver er ástæðan?
Formaður Sæljóns er Guðmundur Elíasson











Skrifa athugasemd