Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Þorsk- og ýsuafli til línuívilnunar - Landssamband smábátaeigenda

Þorsk- og ýsuafli til línuívilnunar

| Athugasemdir (0)

Fyrsta tímabili línuívilnunar þessa fiskveiðiárs er lokið.  Afli til ívilnunar í þorski og ýsu hefur ekki verið meiri þau níu fiskveiðiár sem línuívilnun hefur verið við lýði.  Alls komu 807 tonn til ívilnunar í þorski og litlu minna af ýsa 792 tonn.  Haustið hefur því gefið vel á línuna.

Alls fengu 172 línubátar ívilnun á tímabilinu og var aflanum landað í alls 48 höfnum.

Þrátt fyrir góð aflabrögð nýttist viðmiðun tímabilsins ekki að fullu og færist mismunurinn yfir á annað tímabil sem lýkur 29. febrúar 2012.







Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231