Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Óska eftir sérreglum um byggðakvóta - Landssamband smábátaeigenda

Óska eftir sérreglum um byggðakvóta

| Athugasemdir (0)

Alls hafa 17 sveitarfélög sent sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu bréf og óskað eftir að sérstök skilyrði verði sett um úthlutun byggðakvóta.  Óskir sveitarfélaganna eru afar mismunandi, margar lúta að löndunarskyldu, enn aðrar að löndun á sl. ári, osfrv.

Svo dæmi sé tekið er bréf sveitarstjórnar Kaldrananeshrepps.
„Fallið verði frá skilyrði um tvöföldun löndunarskyldu þess aflamarks sem fiskiskip fá úthlutað“ 
„Og skal öllum byggðakvóta landað til vinnslu í þorskígildum talið.“
„Ekki er heimilt að leigja frá sér úthlutaðan Byggðakvóta heldur skal hann allur veiddur og honum landað til vinnslu á Drangsnesi.  Þó skulu heimil jöfn skipti á aflamarki í þorskígildum talið.“







Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231