Month: February 2012
-
Klinkið – framkvæmdastjóri LS í viðtali
Klinkið er viðtalsþáttur á Stöð 2 um efnhags- og þjóðfélagsmál. Í síðasta þætti var Örn Pálsson gestur Magnúsar Halldórssonar í þættinum. Meðal þess sem rætt var: Gengistryggð lán – afleiðingar Nýfallin vaxtadómur Hugmyndir að lausn Ójöfnuður í fyrirgreiðslu Strandveiðar Þjóðin eigi kvótann Framsal verði óheft Óbreytt útfærsla á veiðigjaldi heftir nýliðun Flottrollsveiðar á loðnu…
-
Klettur boðar til félagsfundar
Stjórn Kletts, félag smábátaeigenda Ólafsfjörður – Tjörnes, hefur boðað félagsmenn sína til fundar. Fundurinn verður haldinn á Akureyri nk. fimmtudag 1. mars. Á dagskrá fundarins verður m.a. eftirfarandi: Kjarasamningar, staðan í viðræðum LS og sjómannasamtakanna Grásleppuvertíðin 2012, reglugerð um grásleppuveiðar, horfur í markaðsmálum ofl. Öryggismál, björgunargallar, AIS ofl. Fundurinn verður á Strikinu og hefst…
-
Undarlegir útreikningar
Í þarsíðustu viku birtist grein eftir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson um strandveiðarnar og slæma útreið þeirra samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands um rekstrarafkomu fiskiskipaflotans. Í síðustu viku svaraði formaður LS Sigurgeiri og bar svargreinin titilinn „Undarlegir útreikningar. Hér að neðan er greinin í heild sinni: „Undarlegir útreikningar Í síðustu viku birtist í Fiskifréttum grein eftir Sigurgeir…
-
Strandveiðar verði gefnar frjálsar
Á aðalfundi LS í október sl. var kosinn nefnd um frjálsar handfæraveiðar. Nefndin hefur fundað og skilaði frá sér áliti til stjórnar LS sem stjórnin samþykkti án teljandi athugasemda. LS hefur sent sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu þær breytingar sem félagið vill að verði gerðar á núgildandi reglum um strandveiðar og grundvallaðar eru á framangreindri samþykkt. a.…
-
35 bátar fengu ýsu á skiptimarkaði
Tilboð í aflaheimildir sem boðnar voru á skiptimarkaði Fiskistofu voru vel umfram það magn sem í boði var. Mest eftirspurn var eftir ýsu og dreifðust þau 464 tonn sem í boði voru á 35 báta. Bátarnir létu frá sér í staðinn þorsk, ufsa og steinbít. Sjá nánar töflu yfir skiptimarkaðinn Frétt Fiskistofu
-
Grásleppuvertíðin – veiðidagar verða 50
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út reglugerð um hrognkelsaveiðar fyrir komandi vertíð. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar frá fyrri reglugerð. Meðal þeirra er breyttur veiðitími, en þó fjöldi veiðidaga verði óbreyttur 50, er tímabilið sem velja má þá daga stytt og verður nú 75 dagar. Grásleppuvertíðin hefst 1. mars á svæði G – við Reykjanes…
-
Mokfiskerí á bátum frá Sandgerði
Línubátar sem róa frá Sandgerði hafa fiskað gríðarlega vel á undanförnum dögum. Aflinn hefur farið í allt að 400 kg á bala af vænum þorski. Frá þessu er skýrt á vef Víkurfrétta og rætt við Halldór Ármannsson skipstjóra á Stellu GK. Sjá alla fréttina
-
VS – afli, sérreglur fyrir grásleppubáta
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út reglugerð þar sem reglum um VS-afla er breytt til hagræðingar fyrir grásleppubáta. Reglugerðin nemur úr gildi tímabilaskiptingar VS-afla fyrir þá báta sem stunda grásleppuveiðar. Ónýttur réttur sem þeir hafa unnið sér inn á fiskveiðiárinu og það sem eftir er af því getur þannig nýst þeim að fullu við…
-
Á að skylda björgunarbúninga í smábáta?
Á félagsfundi í Snæfelli sl. fimmtudag var rætt um notkun björgunarbúning og þeirri spurningu velt upp hvort skylda ætti þá um borð í smábáta. Umræður um málefnið voru mjög góðar bæði með og á móti, kosti og galla. Hvers vegna skilin hefðu verið sett við 12 m langa báta? Gildi vinnuflotgalla sem nú væri skylt…
-
Snæfell ómyrkt í máli
Snæfell, félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi hélt félagsfund í Grundarfirði í gærkveldi, 16. febrúar. Fundurinn var vel sóttur og fjörlegar umræður um þau mál sem brenna um þessar mundir á smábátaeigendum. Kjaraviðræður, strandveiðar, grásleppuveiðar og ýmislegt fleira var rætt í þaula og m.a. samþykkti fundurinn að beina því til Siglingamálastofnunar að kanna gildi flotbúninga um…
