Góður fiskur og afli á strandveiðum - Landssamband smábátaeigenda

Góður fiskur og afli á strandveiðum


 

Að loknum fyrsta degi er hægt að fullyrða að almenn ánægja hafi ríkt meðal strandveiðisjómanna.  Flestir að ná skammtinum sem samanstóð af góðum fiski.
 

Gegnum fiskmarkaðina fóru alls 255 tonn af óslægðum þorski sem gaf 416 króna  meðalverð.   
 

Alls 403 bátar nýttu daginn.  Samanlagður afli á hafnarvog 337 tonn þar af 313 tonn þorskur.  Líklegt er að endurvigtun skili eitthvað lægri tölu enda meðaltalið á bát  777 kg af þorski.


Vissulega er það gott að sem flestir nái skammtinum, en óþolandi er hversu margir fara allt of mikið framyfir.   

774 kg af óslægðum þorski er hámark sem ber að virða. 

Til samanburðar við síðasta ár var meðaltalið þá 730 kg og fjöldi báta 326 á fyrsta degi.
 

Vakin er athygli á að afli sem skráist sem umframafli á strandveiðum reiknast ekki til byggðakvóta. Hvorki sem mótframlag né veiðireynsla og er það breytt framkvæmd frá fyrri árum.   

 

 

Svæði 

Fj. báta

Landanir

Magn

Þorskur

Ufsi

Karfi

A

220

220

186.915

176.846

2.019

565

B

54

54

36.469

36.044

120

46

C

31

31

25.880

24.105

1.247

0

D

98

98

87.478

75.990

848

142

Samtals

403

403

336.742

312.985

4.234

753

 

Tölur frá Fiskistofu
 

efnisyfirlit síðunnar