Fönix tyllir sér á toppinn - Landssamband smábátaeigenda

Fönix tyllir sér á toppinn




Fönix BA er alveg við það að rjúfa 60 tonna aflamúrinn á grásleppuvertíðinni.  Að lokinni 10. löndum þann 8. maí var aflinn kominn í 59 tonn og 487 kg.   


Að sögn Hafþórs Jónssonar eiganda og skipstjóra Fönix man hann varla eftir öðru eins moki og á þessari vertíð.  Hafþór er þó enginn nýgræðingur í faginu, hefur varla misst úr vertíð frá því hann hóf eigin útgerð 1993.   Stærsti róðurinn það sem af er var 27. apríl þegar hann landaði 10,4 tonnum. 
1652178631249.png

Grásleppuvertíðin hófst 20. mars.  Taflan sem hér fylgir sýnir stöðu veiðanna að loknum 50 dögum.

50 dagar liðnir frá upphafi vertíðar [20. mars - 8. maí]
 20222021Breyting
Afli2.912 Tonn 5.668 Tonn -49%
Landað 135 Bátar 152 Bátar -11%
Fjöldi landana1.414 2.156 -34%
Landanir10,5 pr. bát 14,2 pr. bát -26%
Afli pr. löndun2,06 Tonn 2,63 Tonn -22%
Leyfisdagar3.041 Dagar 4.514 Dagar -33%
Afli pr. leyfisdag957 Kg 1.256 Kg -24%
Milli umvitjana2,15 Dagar 2,09 Dagar 3%
Mestur afli á bát59,5 Tonn 110,3 Tonn -46%
Meðaltal á bát21,6 Tonn 37,3 Tonn -42%
Fjöldi á veiðum45 Bátar 76 Bátar -41%
Selt á markaði
Grásleppa677 Tonn 948 Tonn -29%
Verð169 Kr/kg 135 Kr/kg 25%
Hrogn29 Tonn 37 Tonn -22%
Verð 742 Kr/kg 494 Kr/kg 50%
Hlutdeild á markað27%19%41%
 

efnisyfirlit síðunnar

...