Alls staðar mokveiði - lítið álag á miðunum - Landssamband smábátaeigenda

Alls staðar mokveiði - lítið álag á miðunum




LS hefur tekið saman tölur um þorsk- og ýsuveiði krókaaflamarksbáta við upphaf yfirstandandi fiskveiðiár og borið saman við sama tímabil sl. 4 ár.   Tímabilið er til og með 19. nóvember - 80 dagar.
Ýsa
Fiskveiðiár - [tölur óslægt]Úthlutun sbr.hlutdeildÝsuafli t. m.   19. nóvemberHlutall
2018/20198.140 Tonn 3.083 Tonn 38%
2019/20205.846 Tonn 3.182 Tonn 54%
2020/20217.524 Tonn 4.745 Tonn 63%
2021/20225.919 Tonn 2.805 Tonn 47%
2022/20238.660 Tonn 3.651 Tonn 42%
  

Viðmælendur eru sammála um að nánast aldrei hafi verið jafnmikið af fiski á miðunum og nú.  Kannski ekki að furða þar sem lítið álag er á miðunum.  

Halda þarf verulega aftur af sér til að aflinn verði ekki of mikill í hverri sjóferð.  Þannig landaði línubáturinn Eskey ÓF á Siglufirði sl. laugardag 9 tonnum, þar sem ýsa var ⅔ hluti aflans.  Róið var með 36 bala þar sem smokkur var meginuppistaða beitunnar.  Róðurinn varði í 17 klukkustundir og skilaði 250 kg á hvern bala.

Áhugavert er að bera aflabrögðin í ýsunni saman við fiskveiðiárið 2007/2008 þegar leyfilegur heildarafli var 105.823 tonn.  Þá voru menn róður eftir róður að rembast við að ná 100 kg á bala, en nú þegar heimildirnar eru rúmum 40% lægri eru aflabrögðin eins og áður sagði. 



Mestur þorskafli þrátt fyrir minnstu heimildirnar

Þrátt fyrir 6,1% skerðingu í þorski milli ára hefur þorskafli krókaflamarksbáta aukist um hvorki meira né minna 28% á téðu tímabili.  Hafa nú veitt 32% af úthlutuðu aflamarki, sem er mun hærra hlutfall en sömu tímabil þar á undan þegar hlutfallið rokkaði á milli 20 og 23%. 

Þorskur
Fiskveiðiár - [tölur óslægt]Úthlutun sbr.hlutdeildÞorskafli t. m.   19. nóvemberHlutall
2018/201943.573 Tonn 8.987 Tonn 21%
2019/202044.906 Tonn 9.983 Tonn 22%
2020/202142.288 Tonn 8.503 Tonn 20%
2021/202236.657 Tonn 8.511 Tonn 23%
2022/202334.288 Tonn 10.912 Tonn 32%
  

Greinilegt er að vinnslur leggja um þessar mundir meiri áherslu á að vinna þorsk en ýsu.


Sjá nánar:  Þorskur 80 dagar.pdf       Ýsa 80 dagar.pdf

 

efnisyfirlit síðunnar

...