Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

„Þetta var nú meira ferlíkið“ - Landssamband smábátaeigenda

„Þetta var nú meira ferlíkið“

| Athugasemdir (0)

Hafþóri Jónssyni trillukarli á Patreksfirði brá heldur betur í brún þegar hann var að draga línuna nú fyrir skömmu. „Það hafði verið frekar dræmt og rólegt, þannig að maður innbirti línuna hálf kæruleysislega. Skyndilega var þó friðurinn úti því stærðarinnar skötuselur sá dagsins ljós. Hann lét nú hálf ófriðlega greyið þangað til við vorum búnir að koma böndum á hann. Eftir það var aldrei vafi á hvernig viðureignin mundi enda“, sagði Hafþór í stuttu spjalli við smabatar.is
Á myndinni sést Hafþór með ferlíkið, sem vó 15 kg.skotuselur_.jpg Hafþór sagði það hafa færst í aukanna að fá skötusel á þessum slóðum en það sé hins vegar fremur sjaldgæft að fá hann á línu.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231